Vika 16-20 April
Þessa viku vour við að byrja með ný börn í aðlógum. Við mynduðum nyja hópa til leikja. Deildín óskar öllum foreldrum Gledilegs sumars. Endilega munið eftir sólvörum fyrir börnin ykkar og setjð pau í hólfín þeirra. Strigaskór og léttari fatnaður eftir veðri er líka gott að fá nú þar sem börnin eru meira úti og vetrarfattnaðurinn ekki lengur nauðsylegur.
Kv.LILY HALL
Kæru foreldrar
Nú er komin nokkur reynsla á heimasíðuna okkar og fer hún batnandi með hverjum mánuði. Enn eru þó hnökrar á því að efnið sé sett inn oftar og síðan uppfærð betur. Heimasíðan er þó meiri hluti af samskiptaleið / upplýsingarleið okkar til foreldra en áður var. Við sjáum að við getum gert betur og ætlum að halda því áfram að bæta okkur í notkun heimasíðunnar. Upplýsingarleiðir til foreldra eru margar og er heimasíðan ein af þeim. Allar upplýsingar sem finna má á heimasíðunni, um starfið - sérstaka daga og fl., eru á veggjum leikskólans, á viðburðadagatali á hverri deild leikskólans og / eða sent í tölvupósti til foreldra frá deildunum hverri fyrir sig. Það sem betur má fara hjá okkur eru td. upplýsingar um starfið til lengri tíma litið inni á heimasíðunni, myndir úr starfinu og áminningar um sérstaka daga. Þá sjáum við heimasíðuna sem vettvang fyrir sérstakar upplýsingar um einsktaka hluti s.s. viðbrögð við ýmsum þáttum s.s. skyndilegum veikindum eða slysum, dauðsfalli, náttúruhamförum og fl. Einnig mætti sjá meira inni ss. punkta eða linka á einstaka staði um málefni líðandi stundar sem snúa að leikskólanum, leikskólamálum almennt og starfinu með börnunum sem slíku. Vissulega eru þetta framtíðasýnir og það er gott að hafa eitthvað að stefna að og bæta sjálfan sig um leið. Með ósk um áframhaldandi og betri virkni á heimasíðunni okkar þakka ég þeim foreldrum sem hafa ýtt á mig / okkur varðandi heimasíðuna og efnið þar. Samstarf okkar við ykkur um heimasíðuna er nauðsynlegt og óska ég eftir að foreldrar haldi því áfram að hnippa í okkur drögumst við aftur úr með vinnuna. Þá eru allar ábendingar um efni sem gæti átt heima á heimasíðunni vel þegið. Með von um að árið 2012 verði aðeins betra í uppfærslu á heimasíðunni. Takk kærlega fyrir ykkar þáttöku og umræðu um heimasíðuna.
Til hamingju með nýju heimasíðuna
Loksins er heimasíðan að verða tilbúin. Það hefur tekið langan tíma að fá heimasíðuna í gagnið og of langt og leiðinlegt að útskýra þá þrautagöngu. Núna hillir í góða og skilvirka heimasíðu sem við bindum miklar vonir við. Við gerum okkur grein fyrir því mikilvægi sem heimasíða er og þvi upplýsingartæki sem hún er okkur. Væntingar okkar til hennar eru miklar og sjáum við mörg tækifæri við notkun hennar í miðlun upplýsinga til foreldra samhliða því að setja upp auglýsingar á deildum og í fataklefanum. Við gerum okkur grein fyrir því að skort hefur tækifæri fyrir foreldra til að fylgjast náið með leikskólagöngu barnanna og vonum við að nú verði breyting þar á. Þá er líka settur inn linkur þar sem upplýsingar eru sendar beint til foreldra eftir deildum s.s. skilaboð og vikulegir punktrar. Deildarstjórar koma til með að sjá um þá þætti að mestu og er það góð viðbót í annars gott samstarf og samskipti við foreldra. Foreldrar geta líka sent inn sínar vangaveltur og fyirispurnir og komið með hugmyndir að starfinu.
Síðast en ekki síst er rétt að nefna myndir sem nú eru komar inn á síðuna. Leikskólinn á mikið safn mynda úr starfinu og hefur það aðeins verið birt foreldrum að hluta og við ákveðin tækifæri. Nú er ætlunin að setja inn myndir úr starfinu reglulega og hafa þær inni í 3 - 6 mánuði. Það er eindregin ósk okkar og ætlun að heimasíðan verði virkt verkfæri í samskiptum okkar við foreldra og viðbót við upplýsingarstreymi okkar á milli. Enn og aftur biðst ég velvirðingar á að ekki hafi tekist fyrr til en raun er að koma heimasíðunni í gagnið. Það er ósk mín að þið foreldrar verði upplýstari um það ánægjulega starf okkar með börnunum ykkar sem fram fer í leikskólanum og að allir njóti þess að fylgjast með í gegnum heimasíðurna. Með ósk um gott sumar til handa börnum og foreldrum vona ég að þið njótið vel.
Kær kveðja Gugga