Stórakot
Stórakot er deild fyrir elstu börnin. Á Stórakoti eru börn á bilinu þriggja
til sex ára eftir því hvaða tími árs er. Börnin fara í TRAS-stund, hópastarf,
lýðræðisstund en skólahópur í skólastund.
Á Stórakoti er skólahópur sem fer í skólastundir sem undirbúningur fyrir
grunnskóla. Í skólahópi eru börn sem eru á síðasta ári leikskólans.
Skólastundirnar eru að jafnaði þrisvar í viku. Þau læra um bókstafina,
tölustafina o.fl. Hinum börnunum er aldursskipt í tvo hópa og fara einu sinni í
viku í TRAS-vinnustundir, einu sinni í viku í hópastarf og einu sinni í
lýðræðisstund með sínum hópi.
TRAS-vinnustundir eru
málörvunarstundir sem hópurinn á í rólegheitum með sínum hópstjóra. TRAS
(Tidlig Registrering Av Språkudvikling) er skráning á málþroska sem grundvallast
á markvissum athugunum í daglegum samskiptum við barnið. Prófið er byggt á
fræðilegum grunni, þar sem leitast er við að svara spurningum sem byggðar eru á
niðurstöðum þekkta atferlis- og málþroskakvarða.
Í hópastarfinu er unnið með þemu á alls kyns hátt, til dæmis: Ég og
leikskólinn, fjölskyldan mín, líkaminn minn og skynfærin, matarræði, hreyfing,
heilsa og fleira.
Í lýðræðisstundum fá börnin algjört frelsi við að velja sér efnivið í leik
og rými til hans. Þetta er gert til að koma til móts við lýðræði barnanna og
réttindi sem oft reynist erfitt að mæta í stórum hóp á einni deild.
Einnig er reynt að fara í útiveru eins oft og veður leyfir
