Litlakot
Litlakot
Litlakot er 20 barna deild og þar starfa 5 starfsmenn með börn á aldrinum 6 - 20 mánaða.
Deildinni er skipt upp í 4 hópa og eru 4 - 6 börn í hverjum hóp eftir aldri og þroska.
Hverjum hóp fylgir svo einn starfsmaður sem er hópstjóri hópsins.
Þessi hópaskipting auðveldar yfirsýn starfsmanna og eykur öryggistilfinningu barnanna.
Öll börn fara þrisvar í viku í hópastarf, einu sinni í viku í Lubbastund,
einu sinni í fínhreyfingar og einu sinni í grófhreyfingar.
Lubbastund: Málörvun - Lubbi er hundabangsi sem er ótrúlega mikill vinur barnanna.
Allar lubbastundir byrja á knúsi frá Lubba fyrir hvert barn.
Við hlustum á eitt málhljóð í 2 - 4 vikur og vinnum með það.
Við syngjum lögin sem fylgja hverju málhljóði, lesum vísuna og notum táknræna hreyfingu fyrir hvert málhljóð.
Við syngjum lögin sem fylgja hverju málhljóði, lesum vísuna og notum táknræna hreyfingu fyrir hvert málhljóð.
Í lok annarinnar er svo tekin upprifjun með öllum hljóðum.
Okkar upplifun er að Lubbi sé góð málörvun.
Fínhreyfing: Þegar við þjálfum fínhreyfingar er margt sem við notum til þess að hjálpa okkur.
Við t.d pússlum, málum, pinnum og fleira sem felst í því að nota hendurnar okkar.
Grófhreyfingar: Þegar við æfum okkur í grófhreyfingum þá notum við allan líkamann.
Þetta eru stórar hreyfingar og þær þjálfum við t.d me ðútiveru, boltaleik og fleira.
